Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. mars 2018 19:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carragher ekki kærður en faðirinn fer aftur í ökunám
Mynd: Getty Images
Sparkspekingurinn Jamie Carragher verður ekki ákærður eftir að hann hrækti á 14 ára stelpu um helgina.

Tekið var upp á farsíma þegar Carragher hrækti inn um bílrúðu á fjórtán ára stelpu og föður hennar. Faðirinn hafði verið að hæðast að Carragher eftir 2-1 sigur Manchester United gegn Liverpool.

Carragher hefur ítrekað beðist afsökunar á atvikinu.

Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu en Carragher verður ekki kærður þar sem engin kvörtun barst gegn honum.

Fjölskyldufaðirinn sem tók atvikið upp á síma sinn þarf hins vegar að fara aftur í ökuskólann enda er stranglega bannað að leika sér í símanum við akstur á bifreið.

Sjá einnig:
Carragher settur í bann út tímabilið af Sky


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner