Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 18. mars 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Klopp: Lallana er einn af miklvægustu leikmönnum Englands
Mynd: Getty Images
Adam Lallana hefur átt afar erfitt tímabil, hann hefur verið að glíma við mikil meiðsli en er aðeins farinn að spila aftur.

Hann gat þó ekki æft í nokkra daga í vikunni eftir að hafa meiðst á æfingu en það virðist ekki hafa verið mjög alvarlegt þar sem hann var valinn í enska landsliðshópinn sem mætir Hollandi og Ítalíu í landsleikjahlénu sem framundan er.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool sýnir því fullan skilning að enski landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate hafi valið Lallana í hópinn.

„Þetta hefur verið erfiður tími fyrir Adam (Lallana) þetta voru mjög slæm meiðsli, það tekur alltaf tíma til að koma sér í gang aftur eftir svona meiðsli," sagði Klopp.

„Ég talaði við Gareth (Southgate) í vikunni og sagði honum að hafa Lallana í hópnum og spila honum ekki gæti orðið mikil áskorun fyrir hann."

„Ég sagði honum að hann yrði líklega klár í slaginn í næstu viku," sagði Klopp.

„Þetta tímabil hefur án efa verið það erfiðasta sem Lallana hefur upplifað í boltanum en hann er engu að síður enn einn af miklvægustu leikmönnum enska landsliðsins."
Athugasemdir
banner
banner
banner