Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 17. mars 2018 20:16
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lengjubikarinn: KA áfram í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þróttur R. 1-5 KA
0-1 Frosti Brynjólfsson ('29)
0-2 Elfar Árni Aðalsteinsson ('53)
0-3 Archange Nkumu ('73)
1-3 Markaskorara vantar ('76)
1-4 Elfar Árni Aðalsteinsson ('87)
1-5 Archange Nkumu ('91)

KA er komið í undanúrslit Lengjubikarsins en þeir sigruðu Þrótt R. í kvöld. Það var reyndar ljóst fyrir leikinn að KA myndi vinna riðilinn en það var ljóst eftir úrslitin í leik Breiðabliks og KR fyrr í dag.

KA var með 0-1 forystu í hálfleik en Frosti Brynjólfsson skoraði markið á 29. mínútu. Elfar Árni skoraði annað mark KA í upphafi seinni hálfleiks og tuttugu mínútum síðar skoraði Archange Nkumu þriðja mark Akureyrarliðsins.

Þróttur minnkaði muninn þremur mínútum eftir þriðja mark KA en þeir bættu við tveimur mörkum undir lok leiks.

Þeir Elfar Árni og Archange Nkumu skoruðu mörkin og niðurstaðan 1-5 sigur KA. KA mætir Grindavík í undanúrslitunum.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner