Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 19. mars 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Kristrún skoraði í góðum sigri Chieti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nebrodi 0 - 3 Chieti
0-1 Pica
0-2 Vukcevic
0-3 Kristrún Rut Antonsdóttir

Kristrún Rut Antonsdóttir hefur verið að gera góða hluti með Chieti í ítölsku B-deildinni.

Liðið heimsótti Nebrodi, sem er aðeins með sjö stig eftir sautján umferðir, í gær og lenti ekki í miklum erfiðleikum.

Kristrún skoraði þriðja og síðasta mark leiksins og innsiglaði þannig þriðja sigur Chieti í fjórum leikjum.

Liðið er í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum frá Lazio og sextán stigum frá toppliði Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner