Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 19. mars 2018 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo: Stenst enginn samanburð við mig
Mynd: Twitter
Cristiano Ronaldo er án nokkurs vafa einn af allra bestu knattspyrnumönnum sem uppi hafa verið.

Ronaldo er 33 ára gamall en er þrátt fyrir það búinn að skora 21 mark í 11 leikjum á árinu.

Ronaldo hefur skorað meira en eitt mark á leik á níu árum hjá Real Madrid og hefur unnið alla titla sem hægt er að vinna með félagsliði.

„Til að byrja með dreymdi mig um að vera besti leikmaður heims. Vinir mínir skildu ekkert í mér enda var þetta aðallega djók á þeim tíma. Það var ekki fyrr en ég fór til Manchester sem ég virkilega byrjaði að trúa að ég gæti þetta," segir Ronaldo í nýrri Nike auglýsingu.

„Ég sé ekki marga sem eru með sömu hæfileika, metnað, vinnuframlag og knattspyrnugildi og ég.

„Það verður enginn borinn saman við mig, það er enginn eins og Cristiano Ronaldo. Þú getur verið þú sjálfur, ég er ég sjálfur."


Ronaldo skoraði fernu í 6-3 sigri á Girona á sunnudaginn og á Real svo leik við Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.


Athugasemdir
banner