Hörður Björgvin Magnússon, varnarmaður Bristol City og íslenska landslðisins, fékk góðar fréttir þegar hann fór í myndatöku í morgun vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leik um helgina.
Þar kom í ljós að meiðslin eru ekki alvarleg og Hörður er því á leið til Bandaríkjanna núna eftir smá töf vegna myndatökunnar í morgun. Mbl.is greinir frá þessu í dag.
Þar kom í ljós að meiðslin eru ekki alvarleg og Hörður er því á leið til Bandaríkjanna núna eftir smá töf vegna myndatökunnar í morgun. Mbl.is greinir frá þessu í dag.
„Þetta leit ekki vel út þegar þetta gerðist, en þegar beinið hrökk aftur í lið þá gat ég labbað og útlitið varð bjartara,“ sagði Hörður um meiðslin við mbl.is.
„Það teygðist á einhverju liðbandi við þetta, en ekki mikið, og ég á að geta æft á næstu dögum án þess að þurfa að vera hræddur við eitthvað."
Hörður segir að sjúkraþjálfarar og þjálfarar íslenska landsliðsins meti meiðslin betur fyrir vináttuleikinn gegn Mexíkó í San Francisco aðfaranótt laugardags.
Athugasemdir