Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. mars 2018 21:30
Ingólfur Stefánsson
„Ekki hægt að bera saman Salah og Suarez"
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, vill ekki bera saman Mo Salah og Luis Suarez fyrrverandi leikmann liðsins.

Salah skoraði fjögur mörk gegn Watford um helgina og hefur nú skorað 36 mörk fyrir Liverpool á tímabilinu, fleiri mörk en nokkur annar leikmaður í stærstu deildum Evrópu.

Salah hefur tekið fram úr helstu markaskorurum í sögu Liverpool, þar á meðal Luis Suarez sem leikur nú með Barcelona. Henderson sem hefur spilað með báðum leikmönnunum á tíma sínum hjá Liverpool segir að þeir séu ólíkir leikmenn.

„Þeir eru báðir frábærir á sinn hátt. Þeir skora báðir mikið og vinna mikið fyrir liðið án bolta en það er samt erfitt að bera þá saman."

Suarez skoraði 86 mörk í 133 leikjum fyrir Liverpool á sínum tíma áður en hann gekk til liðs við Barcelona árið 2014.

„Luis fór til Barcelona og hefur gert magnaða hluti þar. Það voru forréttindi að fá að spila með honum."

„En það sem Mo hefur gert á þessu tímabili er ótrúlegt. Gjörsamlega ótrúlegt. Hann skilar ótrúlegum frammistöðum í hverri einustu viku."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner