Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. mars 2018 23:00
Hrafnkell Már Gunnarsson
Memphis: Auðvitað vil ég verða sá besti
Memphis hefur verið á fínu róli með Lyon.
Memphis hefur verið á fínu róli með Lyon.
Mynd: Getty Images
Memphis Depay segist vilja vera einn af þeim allra bestu. Memphis var keyptur til Manchester United árið 2015 en sýndi ekki sýnar bestu hliðar þar og var seldur til Lyon í Frakklandi í fyrra.

Hjá Lyon hefur Memphis hefur verið á fínu róli í frönsku deildinni. Hann gefur skorað tíu mörk og lagt upp sex í 20 leikjum á þessu tímabili.

Lengi var talað um Memphis sem einn af vonarstjörnum heimsins. Núna er hann orðinn 24 ára.

Auðvitað vill ég verða sá besti í heimi. Ég vill spila á móti bestu liðum og bestu leikmönnunum. Ég veit ekki alveg hvað ég þarf að bæta í mínum leik til að ná þessum hæðum.," sagði Memphis í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina Canal +.

,Ég er ekki að reyna vera hrokafullur þegar ég segi að mig vantar ekki gæðin. Það sem ég þarf að bæta er líklega stöðuleikinn."
Athugasemdir
banner
banner