Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 22. mars 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho gaf frí en Shaw mætir og tekur aukaæfingar
Shaw á æfingu hjá Manchester United.
Shaw á æfingu hjá Manchester United.
Mynd: Getty Images
Staðarfjölmiðillinn Manchester Evening News greinir frá því að vinstri bakvöðurinn Luke Shaw sé þessa daganna að taka aukaæfingar á meðan liðsfélagarnir eru í fríi.

Jose Mourinho hefur gagnrýnt Shaw opinberlega en svo virðist sem Shaw ætli að troða sokk upp í Mourinho.

Margir af leikmönnum United eru farnir í landsliðsverkefni en Shaw er ekki einn þeirra. Manchester Evening News segir að Mourinho hafi gefið þeim leikmönnum sem ekki voru valdir í landsliðsverkefni frí í nokkra daga. Shaw hefur þrátt fyrir það vera að mæta á æfingasvæði Man Utd og verið að taka aukaæfingar.

Shaw var tekinn af velli í hálfleik í bikarsigrinum á Brighton um helgina en Mourinho gagnrýndi hann harðlega eftir leik og sagði að hann hefði ekki fylgt taktískum skipunum sínum.

Hinn 22 ára gamli Shaw hefur einungis leikið sjö leiki fyrir Man Utd í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en Ashley Young hefur verið tekinn fram yfir hann í vinstri bakvörðinn.

ESPN sagði í gær að Everton væri að íhuga að gera tilboð í Shaw þegar sumarglugginn opnar.
Athugasemdir
banner
banner