Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. mars 2018 23:01
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: KR vann á Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Selfoss 1 - 2 KR
1-0 Unnur Dóra Bergsdóttir ('8)
1-1 Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir ('41)
1-2 Hildur Björg Kristjánsdóttir ('90)

Unnur Dóra Bergsdóttir kom Selfyssingum yfir gegn KR í Lengjubikarnum fyrr í kvöld.

Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir jafnaði fyrir KR og var staðan jöfn í hálfleik, 1-1.

Bæði lið fengu færi til að krækja í sigurinn en það voru Vesturbæingar sem höfðu betur að lokum, þökk sé marki frá Hildi Björgu Kristjánsdóttur á lokamínútunum.

KR er með sex stig eftir þrjár umferðir og er Selfoss með þrjú.
Athugasemdir
banner
banner
banner