„Þetta er draumastarf," sagði íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir í viðtali við Fótbolta.net í Santa Clara í gær. Edda Sif er að taka upp þættina „Draumurinn um HM" fyrir RÚV.
Edda fjallar um leikmenn íslenska landsliðsins í þáttunum og HM drauminn.
„Það er draumur okkar allra á einhvern hátt að sjá Ísland spila á móti Messi á HM í Rússlandi," sagði Edda en í þáttunum fær fólk að kynnast landsliðsmönnum betur.
„Það eina sem ég er að gera hérna er að reyna að komast að því sem við vitum ekki um þá."
Ísland mætir Mexíkó klukkan 2:00 í nótt í beinni útsendingu á RÚV.
„Það verður mikið fjör bæði hérna og heima," sagði Edda. „Þetta er aðfaranótt laugardags. Fólk fer út að borða og dettur aðeins í bæinn eða heldur partý fyrir leik. Þetta er geggjaður timi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir