Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 24. mars 2018 05:22
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Aron Einar: Mér leið vel inni á vellinum
Icelandair
Aron Einar í leiknum.
Aron Einar í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson lék fyrri hálfleikinn þegar Ísland tapaði fyrir Mexíkó í Santa Clara.

Hvernig var að snúa aftur út á fótboltavöllinn eftir meiðsli?

Lestu um leikinn: Mexíkó 3 -  0 Ísland

„Það er gott að vera búinn með fyrsta leikinn eftir aðgerð. Jákvætt að komast út úr þessum 45 mínútum. Lungun voru ágæt, líkaminn fylgdi ekki alltaf eftir hausnum. Þetta tekur tíma en mér leið vel inni á vellinum," segir Aron.

„Við spiluðum vel í fyrri hálfleiknum og við sköpuðum flest færin í leiknum. Þeir fengu einhverja lélega aukaspyrnu sem mér fannst ekki vera aukaspyrna. Mér fannst hann (Mexíkóinn) vera niðri með hausinn."

„3-0 gefur ekki alveg rétta mynd á þennan leik, þeir eiga skilið að vinna og voru meira með boltann. Mitt mat var að við vorum ekki síðri aðilinn hvað varðar færi en þeir nýttu sín færi betur en við og uppskáru sigur."

Aron fer nú heim til Cardiff en ákveðið var að hann myndi bara leika fyrri landsleikinn. Hann verður því ekki með gegn Perú á þriðjudagskvöld.

„Það er leikur á föstudaginn og það er mikilvægt að ná góðum undirbúningi. Auðvitað vill ég spila alla landsleiki en þetta er fín niðurstaða, leyfa Warnock að ráða við og við," segir Aron.

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner