lau 24. mars 2018 21:00
Gunnar Logi Gylfason
„Þetta er hinn raunverulegi Michy"
Michy Batshuayi
Michy Batshuayi
Mynd: Getty Images
Belginn geðþekki Michy Batshuyai, sem er á láni hjá Borussia Dortmund frá Chelsea, er ánægður með lífið þessa dagana enda hefur honum gengið gríðarlega vel eftir komu sína til Þýskalands.

"Batsman", eins og hann er kallaður, kom til Dortmund á gluggadeginum í janúar og hefur skorað átta mörk í ellefu leikjum.

„Þetta er hinn raunverulegi Michy!" sagði Belginn á fréttamannafundi með belgíska landsliðinu fyrir leik liðsins gegn Sádí-Arabíu.

Honum gekk ekki svona vel hjá Chelsea og var spurður hvað hafði breyst.

„Ég fékk mjög góðar móttökur hjá Dortmund, hjá öllu félaginu. Ég fann fyrir mikilli ást, fótboltamenn eru sterkari þegar þeir hafa sjálfstraust," sagði Belginn.

„Ég bjóst ekki við að ganga svona vel strax. Þetta er hinn raunverulegi Michy en ég vil samt meira," sagði Batshuayi og hélt svo áfram. „Stuðningsmennirnir eru ótrúlegir og völlurinn fallegur. Ég bjóst ekki við að koma mér svona vel fyrir strax," sagði Michy Batshuayi að lokum.

Hann mun spila með belgíska landsliðinu gegn Sádí-Arabíu á þriðjudaginn í vináttulandsleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner