David Silva, leikmaður Manchester City og landsliðsmaður Spánar, hefur farið heim úr herbúðum spænska landsliðsins útaf persónulegum ástæðum.
Þetta var tilkynnt á Twitter-aðgangi spænska landsliðsins.
Silva byrjaði inn á í 1-1 jafntefli Spánar og Þýskalands en mun ekki spila með liðinu gegn Argentínu á þriðjudaginn.
Hann hefur misst af nokkrum leikjum Manchester City í vetur til að fara heim til Spánar og vera hjá konu sinni og syni, sem fæddist fyrir tímann, og er líklegt að það er ástæðan fyrir því að hann hafi farið úr herbúðum landsliðsins.
Athugasemdir