Kompany vill taka við Bayern - Isak og Brobbey efstir á blaði Arsenal - McKenna orðaður við Chelsea og Man Utd
Sterkastur í 7. umferð: Núna er ég kominn ofar á völlinn og þá komu mörk
Ómar Ingi: Er að komast upp á lagið að halda minna með honum
Gummi Magg: Það var sætt að sjá hann í netinu
Haraldur Freyr: Hann allavega brýtur á honum
„Veit ekki hvort hann verði klár í næsta leik, þarnæsta eða eftir tíu leiki"
Jón Þór: Hann bjargaði stigi fyrir okkur í dag
Jason Daði: Ég er leikmaður Breiðabliks og er mjög sáttur hér
Frans: Refsuðum þeim þegar boltinn skoppaði aðeins á grasinu
Jökull: Sendu fullorðna menn að biðja þá um að gera þetta hægt
Rúnar Kristins: Góður varnarleikur, misheppnuð færi og góðir markmenn
Magnús Már: Þetta er ekki "RUPL" þetta er fokking rugl
Dóri Árna: Eins og að fá nýjan leikmann í okkar hóp
Ungstirnið nýtur þess að spila með Fram - „Ekki til betri tilfinning fyrir mig"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Lét Ryder heyra það eftir leik
Sveinn Margeir ósammála Mána: Geggjað tækifæri í námi og fótbolta
Viðar Örn: Heyri fullt af hlutum um mig og í svona 98% tilvika er það kjaftæði
Gregg Ryder: Verið erfiðir tímar fyrir félagið og stuðningsmennina
Ragnar Bragi eftir sinn fyrsta leik í sumar: Erfitt að horfa úr stúkunni
Heimir Guðjóns: Aldrei víti og tekið af okkur löglegt mark
Aron Sig: Menn héldu að þeir væru miklu betri en þeir eru
   sun 25. mars 2018 23:00
Elvar Geir Magnússon
Helgi Kolviðs: Perú sterkari en Mexíkó
Icelandair
Helgi með boltann á æfingu.
Helgi með boltann á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, telur að Perú sé sterkari andstæðingur en Mexíkó. Ísland tapaði 3-0 gegn Mexíkó í fyrranótt en aðfaranótt miðvikudags leikur liðið við Perú. Mexíkó er í 17. sæti á heimslista FIFA en Perú er í 11. sæti.

„Þetta eru svipaðar þjóðir en Perú er sterkari," sagði Helgi við Fótbolta.net í New York í dag.

„Þeir eru líkamlega sterkari og hraðir í skyndisóknum. Þeir pressa ekki það mikið en það er rosalegur hraði í skyndisóknum. Þetta er lið á toppmælikvarða og að mínu mati sterkari andstæðingur en síðast. Við þurfum að eiga mjög góðan dag á móti þeim."

Þrátt fyrir 3-0 tap gegn Mexíkó þá fékk íslenska liðið ekki síðri færi í leiknum. „Þetta 3-0 mark gerði leikinn ljótan í lokin en það var fullt af góðum hlutum," sagði Helgi.

„Áður en við fengum markið á okkur í fyrri hálfleik þá vorum við miklu betur inn í leiknum og áttum miklu fleiri færi," sagði Helgi einnig en hann fer nánar yfir leikinn gegn Mexíkó hér að ofan.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner