Það var stórleikur í bandarísku MLS-deildinni í gær þegar Atlanta United og New York City FC gerðu 2-2 jafntefli í stórskemmtilegum kappleik.
Þetta eru tvö efstu lið austurdeildarinnar en New York er með 17 stig og Atlanta 13 eftir leikinn.
Þetta eru tvö efstu lið austurdeildarinnar en New York er með 17 stig og Atlanta 13 eftir leikinn.
New York, sem Patrick Vieira stýrir, jafnaði í 2-2 með mögnuðu marki finnska landsliðsmannsins Alexander Ring.
Markið má sjá hérna að neðan en Ring þrumaði boltanum í slá og inn.
Markið minnir mann óneitanlega á mark sem Ring skoraði gegn Íslandi í Tampere í september síðastliðnum. Hann náði þá geggjuðu skoti úr aukaspyrnu og reyndist það eina mark leiksins.
ARE YOU KIDDING ME, ALEX RING? #ATLvNYC https://t.co/JAf33RRIrE
— Major League Soccer (@MLS) April 15, 2018
Hér má svo sjá markið sem Ring skoraði gegn Íslandi:
Athugasemdir