Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 19. apríl 2018 07:30
Ingólfur Stefánsson
Aðdáendur Pepsi-markanna geta unnið áskrift að Stöð 2 Sport
Mynd: KSÍ
Flautað verður til leiks í Pepsi deild karla 27. apríl næstkomandi. Pepsimörkin verða á sínum stað á Stöð 2 Sport en upphitunarþáttur fyrir mótið verður sýndir mánudaginn 23. apríl næstkomandi klukkan 21:30.

Pepsimörkin verða virk á samfélagsmiðlum í sumar og núna geta heppnir vinir Pepsimarkanna á Facebook unnið áskrift að Stöð 2 Sport.

Eina sem þarf að gera er að skrifa ummæli við færslu Pepsimarkanna á Facebook og segja með hverjum þú ætlar að horfa á Pepsimörkin og Pepsí-deildirnar í sumar.

Hörður Magnússon er umsjónarmaður þáttanna en sérfræðingar hans í sumar eru þau Freyr Alexandersson,Gunnar Jarl Jónsson, Hallbera Guðný Gísladóttir, Indriði Sigurðsson, Reynir Leósson og
Þorvaldur Örlygsson.

Hægt er að fylgjast með Pepsimörkunum áFacebook og Twitter




Athugasemdir
banner
banner