banner
   fim 19. apríl 2018 09:00
Ingólfur Stefánsson
Aubameyang þakklátur fyrir Lacazette
Mynd: Getty Images
Pierre Emerick Aubameyang framherji Arsenal var hræddur um að hann myndi ekki ná að mynda samband með Alexandre Lacazette áður en hann gekk til liðs við liðið.

Þeir spiluðu gegn hvor öðrum þegar þeir voru hjá mismunandi liðum í frönsku deildinni. Aubameyang hjá St. Etienne og Lacazett hjá Lyon.

Þrátt fyrir áhyggjurnar segir Aubameyang nú að Lacazette hafi hjálpað honum að venjast lífinu á Englandi.

„Vinur minn Lacazett spilaði með Lyon þegar ég var hjá St. Etienne. Hann er leikmaður sem ég kann að meta og hann hefur verið almennilegur við mig síðan ég kom hingað."

„Ég var ekki alveg viss með hann áður en ég kom hingað því það voru nokkrir leikmenn hjá Lyon sem mér líkaði ekki vel við en hann var ekki einn af þeim sem ég lenti upp á kant við þegar ég spilaði við þá."

„Ég er mjög glaður að hafa kynnst svona jákvæðum einstakling sem hefur hjálpað mér að setjast að hérna."


Aubameyang og Lacazette voru saman í byrjunarliði Arsenal í fyrsta skipti gegn Newcastle um síðustu helgi. Þrátt fyrir 2-1 tap Arsenal sýndu leikmennirnir góða takta og Aubameyang lagði upp mark Lacazette.
Athugasemdir
banner
banner