Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 19. apríl 2018 15:58
Ingólfur Stefánsson
Mjólkurbikarinn: ÍA og Afturelding með stórsigra
Steinar skoraði fjögur
Steinar skoraði fjögur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í Mjólkurbikar karla. ÍA fengu ÍH í heimsókn á Akranes.

Skagamenn lentu ekki í vandræðum í leiknum en strax á 10. mínútu var staðan orðin 3-0 þeim í vil.

Þeir bættu við þremur mörkum fyrir hálfleik og staðan því 6-0 í hálfleik. Steinar Þorsteinsson fullkomnaði þrennu sína í upphafi síðari hálfleiks. Hann var þó ekki hættur og skoraði sitt fjórða mark og áttunda mark ÍA á 90. mínútu og gulltryggði 8-0 sigur.

Afturelding og KV mættust á Varmárvelli. Afturelding komst yfir strax á 1. mínútu. Afturelding bætti við marki á 19. mínútu en KV minnkaði muninn fimm mínútum síðar.

Afturelding bættu við einu marki fyrir leikhlé. Þeir mættu svo á fullum krafti í síðari hálfleikinn og skoruðu 4 mörk.

KV skoruði annað mark sitt á 82. mínútu og fengu svo að líta ratt spjald þremur mínútum síðar. Manni fleiri bættu Afturelding við marki og unnu að lokum 8-2 sigur.

ÍA 7-0 ÍH
1-0 Steinar Þorsteinsson (4')
2-0 Sjálfsmark (6')
3-0 Ólafur Valur Valdimarsson (10')
4-0 Stefán Teitur Þórðarson (33')
5-0 Arnór Snær Guðmundsson (36')
6-0 Steinar Þorsteinsson (39')
7-0 Steinar Þorsteinsson (54')
8-0 Steinar Þorsteinsson (90')

Afturelding 8-2 KV
Mörk Aftureldingar:
Andri Freyr Jónasson 3, Jason Daði Svanþórsson 2,Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban, Jökull Jörvar Þórhallsson og Bjarki Ragnar Sturlaugsson

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner