banner
   fös 20. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Titilslagur á sunnudaginn
Mynd: Getty Images
Það eru fimm umferðir eftir af ítalska tímabilinu og er þetta eina af fimm helstu deildum Evrópu þar sem er enn einhver vottur af titilbaráttu.

Topplið deildarinnar, Juventus og Napoli, mætast á sunnudagskvöldið og verður leikurinn sýndur beint á SportTV.

Juventus trónir á toppinum með 85 stig og fylgir Napoli á eftir með 81 stig. Sigur á heimavelli hjá Juve myndi svo gott sem tryggja félaginu sjöunda Ítalíumeistaratitilinn í röð.

Roma, Lazio og Inter verma næstu sæti fyrir neðan en eru tuttugu stigum eftirá og í mikilli meistaradeildarbaráttu sín á milli.

Roma heimsækir Spal í fyrsta leik helgarinnar á morgun og Milan tekur á móti botnliði Benevento í síðasta leik kvöldsins.

Lazio mætir Sampdoria í stórleik á sunnudaginn og er líklegt að Emil Hallfreðsson snúi aftur í lið Udinese fyrir leikinn gegn Crotone eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.

Laugardagur:
13:00 Spal - Roma
16:00 Sassuolo - Fiorentina (SportTV)
18:45 Milan - Benevento (SportTV)

Sunnudagur:
10:30 Cagliari - Bologna (SportTV)
13:00 Lazio - Sampdoria (SportTV2)
13:00 Udinese - Crotone
13:00 Chievo - Inter
13:00 Atalanta - Torino
18:45 Juventus - Napoli (SportTV)

Mánudagur:
18:45 Genoa - Verona (SportTV)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner