Manchester United og Tottenham mættust í kvöld í undanúrslitaleik ensku bikarkeppninnar þar sem Manchester United hafði betur 2-1.
Dele Alli kom Tottenham yfir í leiknum en mörk Alexis Sanchez og Ander Herrera sáu til þess að Manchester United sigraði.
Alexis Sanchez fékk hæstu einkunn þeirra sem léku á Wembley í dag, hann fékk átta en það fékk Herrera einnig en Sky Sports valdi Sanchez mann leiksins.
Einkunnir Man Utd: De Gea (7), Valencia (6), Jones (6), Smalling (7), Young (6), Matic (6), Herrera (8), Pogba (7), Lingard (7), Sanchez (8), Lukaku (7).
Varamenn: Darmian (5), Rashford (5).
Einkunnir Tottenham: Vorm (5), Trippier (5), Sanchez (6), Vertonghen (6), Davies (6), Dier (5), Dembele (5), Eriksen (6), Alli (6), Son (5), Kane (5).
Varamenn: Wanyama (5), Moura (5).
Maður leiksins: Alexis Sanchez.
Athugasemdir