Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. apríl 2018 22:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pochettino: Við vorum miklu betri en þeir í fyrri háfleik
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í Tottenham töpuðu fyrir Manchester United í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld, 2-1.

„Öll töp eru slæm, en það er alveg sérstaklega leiðinlegt að tapa í þessari keppni þegar maður er kominn svona langt," sagði Pochettino.

„Við börðumst mikið í dag en ekki nóg til að ná í sigurinn, við vorum frábærir í fyrri hálfleik og spiluðum miklu betur en Manchester United."

„United varðist mjög vel. Við erum mjög svekktir því við vorum svo nálægt því að komast í úrslitaleikinn. En nú þurfum við bara að halda áfram og klára tímabilið með sóma," sagði Maricio Pochettino en Tottenham mætir næst Watford í deildarleik þann 30. apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner