Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. apríl 2018 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Guardiola telur Vieira tilbúinn til að taka við Arsenal
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City telur að Patrick Vieira sé tilbúinn í að taka við Arsenal en mikið er nú rætt um hver eftirmaður Arsene Wenger verður sem tilkynnti á föstudaginn að hann muni hætta í vor hjá Arsenal.

Guardiola var spurður hvort Vieira gæti orðið einn af bestu þjálfurum í heimi.

„Auðvitað, hann er það nú þegar," var svar Guardiola.

„Núna eftir að Wenger tilkynnti að hann sé að hætta þá eru mörg nöfn í umræðunni. Arsenal mun hugsa sig vel um og mun velja besta kostinn, en já Vieira er tilbúinn í þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner