Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. apríl 2018 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Nainggolan hlakkar til að hitta Salah
Mynd: Getty Images
Liverpool fær Roma í heimsókn í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn, Belginn Radja Nainggolan sem leikur með Roma er orðinn spenntur að hitta fyrrum liðsfélaga sinn, Mohamed Salah.

„Ég talaði við Salah og hann trúði því ekki heldur að við slóum Barcelona úr leik," sagði Nainggolan.

„Það verður gaman að hitta Salah aftur, hann er frábær náungi, góður, heiðarlegur og frábær fótboltamaður."

„Það hefur ekkert komið mér á óvart hversu góður hann hefur verið í vetur af því að ég vissi að hann hefði þessi gæði. Eini munurinn núna er sá að hann er að fá fleiri færi og er meira yfirvegaður fyrir framan markið en hann var, ég er stuðningsmaður hans," sagði Nainggolan að lokum.
Athugasemdir
banner
banner