Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. apríl 2018 13:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Chelsea og Southampton: Morata á bekknum
Caballero í markinu fyrir Courtois
Giroud byrjar.
Giroud byrjar.
Mynd: Getty Images
Alvaro Morata er ekki í byrjunarliði Chelsea sem mætir Southampton í undanúrslitum enska bikarsins í dag. Olivier Girud skoraði tvennu eftir að hafa komið inn á sem varamaður gegn Southampton í deildinni um síðustu helgi og hann byrjar.

Það er enginn Marcos Alonso með Chelsea, hann er í leikbanni og þá er Thibaut Courtois einnig fjarri góðu gamni. Caballero er valinn í markið fyrir Courtois sem er ekki í hóp.

Gary Cahill byrjar þá í stað Andreas Christensen og Emerson byrjar fyrir Marcos Alonso sem er eins og áður segir í banni.

Southampton gerði jafntefli við Leicester í vikunni. Frá þeim leik kemur Charlie Austin í byrjunarliðið ásamt Mario Lemina.

Liðið sem vinnur þennan leik mætir Man Utd í bikarúrslitum.

Byrjunarlið Chelsea: Caballero, Azpilicueta, Cahill, Rudiger, Moses, Kante, Fabregas, Emerson, Willian, Giroud, Hazard.
(Varamenn: Eduardo, Christensen, Zappacosta, Bakayoko, Barkley, Pedro, Morata)

Byrjunarlið Southampton: McCarthy, Soares, Hoedt, Yoshida, Bednarek, Bertrand, Romeu, Hojbjerg, Lemina, Austin, Long.
(Varamenn: Forster, McQueen, Tadic, Redmond, Ward-Prowse, Gabbiadini, Carrillo)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner