Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir að Pepsi-deildin fer af stað en á föstudagskvöld verður stórleikur milli Íslandsmeistara Vals og KR á Hlíðarenda.
„Þetta verður geggjað. Reykjavíkurslagur. Það er frábært að fá KR-inga í heimsókn. Við búumst við frábæru KR-liði og verðum tilbúnir," segir Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals.
„Þetta verður geggjað. Reykjavíkurslagur. Það er frábært að fá KR-inga í heimsókn. Við búumst við frábæru KR-liði og verðum tilbúnir," segir Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals.
KR-ingar hafa ekki litið neitt frábærlega út í vetur.
„Þeir hafa fengið Rúnar (Kristinsson) aftur og hann er að endurskipuleggja þetta eitthvað þarna. Þeir eru með gríðarlega sterkan mannskap og þeir komast ekki bakdyramegin inn í þetta. Þeir eru með öflugan hóp. Úrslit síðustu vikna skipta engu máli og þessir gæjar í KR tikka inn þegar mótið byrjar. Það er ljóst."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
föstudagur 27. apríl
20:00 Valur-KR (Valsvöllur)
20:00 Stjarnan-Keflavík (Samsung völlurinn)
laugardagur 28. apríl
14:00 Breiðablik-ÍBV (Kópavogsvöllur)
14:00 Grindavík-FH (Grindavíkurvöllur)
16:00 Fjölnir-KA (Egilshöll)
18:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir