Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. apríl 2018 10:28
Magnús Már Einarsson
Ancelotti boðið að taka við ítalska landsliðinu
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.
Mynd: Getty Images
Ítalska knattspyrnusambandið hefur boðið Carlo Ancelotti að taka við stöðu landsliðsþjálfara.

Ancelotti var rekinn frá Bayern Munchen í september og hefur verið án starfs síðan þá.

Ancelotti hefur verið í viðræðum við ítalska sambandið og hann hefur nú fengið tilboð um að taka við landsliðinu.

Gian Piero Ventura var rekinn úr stöðu landsliðsþjálfara í nóvember eftir að Ítalía tapaði gegn Svíþjóð í umspili um sæti á HM í Rússlandi.

Talið er að hinn 58 ára gamli Ancelotti sé með tilboð á borðinu upp á tveggja ára samning.
Athugasemdir
banner