Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 24. apríl 2018 11:00
Fótbolti.net
Meistaraspáin: Nær Liverpool að leggja Roma?
Hvað gerist í kvöld?
Hvað gerist í kvöld?
Mynd: Fótbolti.net
Mohamed Salah mætir gömlu félögunum í Roma í kvöld.
Mohamed Salah mætir gömlu félögunum í Roma í kvöld.
Mynd: Getty Images
Undanúrslitin í Meistaradeildinni hefjast í kvöld þegar Liverpool og Roma mætast á Anfield klukkan 18:45.

Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals og Tryggvi Guðmundsson markahrókur eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni.

Fótbolti.net kemur með sína spá en keppni er í gangi þar sem 3 stig eru gefin fyrir hárrétt úrslit og 1 stig fyrir rétt tákn. Fótbolti.net leiðir eftir fyrstu leikina.


Tryggvi Guðmundsson:

Liverpool 2 - 0 Roma
Það er bullandi jákvæðni og fjör í kringum Liverpool núna. Töpuðu niður tveggja marka forystu um helgina þó en þar má kannski kenna um hvíld á leikmönnum og hugur manna á þessum leik. Spá því að Liverpool haldi hreinu þrátt fyrir ágætis tilraunir Dzeko og félaga

Sigurbjörn Hreiðarsson:

Liverpool 3 - 1 Roma
Verður öruggur sigur en mikilvægt útivallamark Roma setur seinni leikinn í spennu.

Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Liverpool 3 - 1 Roma
Liverpool heldur áfram að raða inn mörkum og Salah skorar eitt gegn gömlu félögunum. Roma minnkar muninn eftir fast leikatriði og heldur lífi í einvíginu. Loris Karius hefur staðið sig mun betur en Simon Mignolet en hann getur ekkert gert í þessu marki.


Staðan í Meistaraspánni:
Fótbolti.net 18
Tryggvi 15
Sigurbjörn 8
Athugasemdir
banner
banner