Uppgjörið heldur áfram í ensku úrvalsdeildinni. Football365 valdi tíu bestu miðverði tímabilsins en áður höfðum við birt lista yfir bestu markverðina og bakverðina.
Sjá einnig:
Topp tíu - Bestu markverðir tímabilsins
Topp tíu - Bestu bakverðir tímabilsins
Sjá einnig:
Topp tíu - Bestu markverðir tímabilsins
Topp tíu - Bestu bakverðir tímabilsins
10) Davinson Sanchez (Tottenham) - Yngsti miðvörðurinn sem leikið hefur 20 deildarleiki eða meira á tímabilinu. Var ekki lengi að finna sig með Tottenham.
9) James Tarkowski (Burnley) - Átti aðeins fjóra byrjunarliðsleiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir þetta tímabil. Hefur komið á óvart með geggjaðri frammistöðu.
8) Nacho Monreal (Arsenal) - Stökk inn í miðvörðinn og þar var hann mjög áreiðanlegur. Líður betur í vinstri bakverði en frammistaðan í miðverðinum verið aðdáunarverð.
7) Lewis Dunk (Brighton) - Hefur ekki misst út mínútu. Þessi 26 ára enski varnarmaður hlýtur að vera kominn undir smásjá stærri félaga.
6) Jamaal Lascelles (Newcastle) - Fyrirliðinn er mjög mikilvægur fyrir Newcastle og úrslitin þegar hann hefur verið fjarverandi verið döpur!
4) Cesar Azpilicueta (Chelsea) - Ekki besta tímabil hans hjá Chelsea en samt sem áður skorar hann hátt á listanum.
3) Harry Maguire (Leicester City) - Heldur áfram að sýna hversu hrikalega góður varnarmaður hann er. Hefur átt frábært tímabil.
2) Nicolas Otamendi (Manchester City) - Hefur fengið gagnrýni fyrir að gera of mörg dýrkeypt mistök en á þessu tímabili hefur hann verið verulega góður. Var valinn í lið tímabilsins.
Athugasemdir