banner
   þri 24. apríl 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta tímabil De Gea - Hrósar Mourinho sem hefur „unnið allt"
Mynd: Getty Images
„Þetta er mitt besta tímabil fyrir Manchester United. Ég hef verið nokkuð ánægður með frammistöðu mína," segir David de Gea, markvörður Manchester United.

De Gea hefur verið hreint út sagt frábær fyrir United og hjálpað liðinu að landa þónokkrum stigum.

Hann var valinn í lið tímabilsins á Englandi á dögunum.

De Gea hefur átt nokkur stórkostleg tímabil með United en hann er á því máli að þetta standi upp úr.

„Mér hefur liðið vel og ég hef verið í góðu líkamlegu formi á þessu tímabili. Vonandi get ég spilað vel í þessum síðustu leikjum og tekið það með mér inn á HM, sem verður mikilvægt fyrir Spán."

De Gea segir að Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Man Utd, hafi hjálpað sér og liðinu mjög mikið.

„Við erum með frábæra knttspyrnustjóra. Hann er mjög reyndur og hefur unnið allt sem hægt er að vinna fótboltanum. Það sem hann er mjög góður í er að dreifa sigurhugarfarinu inn í hópinn."

„Hins vegar, á endanum, er þetta undir okkur sjálfum komið - leikmönnum á vellinum. Sem hópur verðum við að sýna stöðugleika og gæði yfir allt tímabilið."
Athugasemdir
banner
banner