Klukkan 18:45 verður flautað til leiks Bayern München og Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þetta er fyrri viðureign liðanna.
Real Madrid stefnir á að vinna þessa keppni þriðja árið í röð en liðið hefur verið magnað í keppninni á þessu tímabili og Cristiano Ronaldo verið nánast óstöðvandi.
Real Madrid stefnir á að vinna þessa keppni þriðja árið í röð en liðið hefur verið magnað í keppninni á þessu tímabili og Cristiano Ronaldo verið nánast óstöðvandi.
David Alaba er meiddur og getur ekki tekið þátt fyrir Bayern en Arjen Robben er meðal leikmanna í byrjunarliðinu. Þá er James Rodriguez einnig að byrja en hann er á láni frá Real Madrid.
Karim Benzema og Gareth Bale eru meðal varamanna hjá Real en Zinedine Zidane veðjar á Lu.cas Vazquez.
Sjá einnig:
Meistaraspáin
Byrjunarlið Bayern: Ulreich; Kimmich, Hummels, Boateng, Rafinha; Martinez; Robben, James, Ribery; Müller; Lewandowski.
Byrjunarlið Real Madrid: Navas; Carvajal, Ramos, Varane, Marcelo; Casemiro, Modric, Kroos; Isco, Cristiano, Lucas Vazquez.
STARTING XI and SUBS vs. @realmadriden! 💪#FCBRMA pic.twitter.com/mORy0TSJPI
— FC Bayern US (@FCBayernUS) April 25, 2018
📝 Tonight's starting XI in Munich! #APorLa13 pic.twitter.com/uTmyHamYqK
— Real Madrid C.F.🇺🇸🇬🇧 (@realmadriden) April 25, 2018
Athugasemdir