Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. apríl 2018 17:48
Elvar Geir Magnússon
Færeyjar: Heimir og lærisveinar með stórsigur
HB er á sigurbraut.
HB er á sigurbraut.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
B68 0 - 4 HB
0-1 Adrian Justinussen
0-2 Adrian Justinussen
0-3 Magnus Egilsson
0-4 John Frederiksen

Heimir Guðjónsson og lærisveinar í HB eru komnir áfram í 8-liða úrslit færeysku bikarkeppninnar eftir 4-0 útisigur gegn B68 frá Tóftum í dag.

HB er á flottu skriði og hefur unnið fjóra síðustu deildarleiki. Brynjar Hlöðversson, fyrrum leikmaður Leiknis, spilar með liðinu.

Adrian Justinussen skoraði tvö mörk fyrir HB í dag en um er að ræða ansi efnilegan 19 ára sóknarmann.

Óvænt úrslit urðu í færeyska bikarnum í dag þegar topplið færeysku úrvalsdeildarinnar, KÍ Klaksvík, var slegið úr leik af TB/FCS/Royn.
Athugasemdir
banner
banner
banner