Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. apríl 2018 23:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hafa safnað milljónum króna fyrir stuðningsmann Liverpool
Sean Cox er að berjast fyrir lífi sínu.
Sean Cox er að berjast fyrir lífi sínu.
Mynd: Facebook - Dublin GAA
Þúsundir punda hafa safnast fyrir Sean Cox sem varð fyrir fólskulegri árás fyrir utan The Albert Pub við Anfield í gærkvöldi.

Cox er stuðningsmaður Liverpool og ætlaði hann að mæta á leik liðsins gegn Roma. Hann gat hins vegar ekki verið viðstaddur 5-2 sigur Liverpool þar sem hópur stuðningsmanna Roma réðst á hann um 30 mínútum fyrir leikinn.

Cos, sem er 53 ára Íri, berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi.

Talið er að stuðningsmenn Roma hafi slegið með belti í höfuðið á honum en tveir Ítalir, 25 og 26 ára, voru handteknir fyrir að ráðast á manninn. Þeir eru sakaðir um morðtilraun.

Ekki er vitað fyrir vissu hvers vegna var ráðist á Cox; hann var væntanlega bara á röngum stað á röngum tíma.

Búið er að setja af stað safnarnir til þess að aðstoða Sean og hans fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Liverpool Echo greinir frá.

Á Facebook síðu stuðningsmanna Liverpool í Írlandi, þar skrifaði maður að nafni Emmet Kavanagh: „Ég hef ákveðið að koma á fót fjáröflunarsíðu til þess að borga læknisreikninga Sean svo fjölskylda hans geti verið til staðar fyrir hann"

„Ég hef verið í sambandi við fjölskyldumeðlim og þau vita af því að verið sé að safna pening."

Þegar þessi frétt er skrifuð hafa tæplega 20 þúsund evrur (tæpar 2,5 milljónir ísk) safnast í fjáröfluninni sem Kavanagh stendur fyrir. Í annarri söfnun fyrir Cox sem Stephen nokkur Moss stendur fyrir hafa rúm 1200 pund (170 þúsund ísk) safnast.

Smelltu hér eða hér til þess að skoða hvað safnast hefur.

Sjá einnig:
Henderson sendir stuðningsmanninum hjartnæma kveðju
Athugasemdir
banner
banner