fim 26. apríl 2018 16:07
Magnús Már Einarsson
Mane æfði ekki í dag - Fór á sjúkrahús
Meiddur?
Meiddur?
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool hafa áhyggjur af því að Sadio Mane sé meiddur eftir að hann sást á sjúkrahúsi þar í borg í dag.

Mane æfði ekki með Liverpool í dag en myndir náðust af því þegar hann kom haltrandi á sjúkrahús. Hann var hálftíma á sjúkrahúsinu áður en hann fór aftur út.

Mane spilaði allar 90 mínúturnar í 5-2 sigri Liverpool á Roma í vikunni.

Hann gæti nú hins vegar verið tæpur fyrir síðari leikinn næstkomandi miðvikudag.

Liverpool mætir Stoke á laugardaginn en búast má við að Jurgen Klopp flytji fréttir af Mane á fréttamannafundi á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner