Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. maí 2018 20:54
Ingólfur Páll Ingólfsson
England: Brighton sigraði Man Utd
Mynd: Getty Images
Brighton 1 - 0 Man Utd
1-0 Pascal Gross ('57)

Brighton fékk Manchester United í heimsókn í kvöld í ensku úrvalsdeildinni.

Marouane Fellaini kom knettinum í netið en var dæmdur rangstæður eftir einungis 3. mínútna leik eftir frábæra aukaspyrnu frá Rashford, markið því ógilt.

Brighton voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og varði David De Gea meðal annars vel frá Izquierdo og Murray.

Manchester United kom öflugt inn í síðari hálfleikinn en það voru hinsvegar heimamenn sem brutu ísinn. Pascal Gross skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf Izquierdo. Rojo virtist hafa bjargað frábærlega á línu en marklínutæknin kom að góðum notum og dæmdi markið gilt.

Á 72. mínútu átti Marcus Rashford skot af 25 metra færi sem Ryan varði vel. Lingard klúðraði dauðafæri undir lok leiks er hann skaut framhjá. Þar við sat og afar mikilvæg þrjú stig í höfn fyrir Brighton sem tryggir þeim sæti í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner