Nýliðar Brighton gulltryggðu sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni með 1-0 sigri á Manchester United á föstudaginn.
Brighton á eftir leiki gegn Liverpool og Tottenham en liðið þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af falldraugnum.
Chris Hughton, stjóri Brighton, reiknar ekki með miklum breytingum á leikmannahópnum fyrir annað tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég sé engar dramatískar breytingar," sagði Hughton.

„Það er sama hvað lið það er, ef þú telur að þú getur bætt þig og orðið betri á næsta tímabili þá skoðum við það en ég sé ekki miklar breytingar."
Athugasemdir