Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 08. maí 2018 21:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Stjóri Swansea: Gerðum okkar besta
Mynd: Getty Images
Carlos Carvalhal, stjóri Swansea City segir liðið hafa gert sitt besta í kvöld.

Í viðtali eftir leik hafði Carvalhal þetta að segja.

„Þetta var skellur því að strákarnir gerðu allt rétt í leiknum. Hugarfar leikmanna var frábært. Við spiluðum fleiri löngum boltum en venjulega en það er eðlilegt í svona kringumstæðum. Markmaðurinn varði tvisvar eða þrisvar frábærlega," sagði Carvalhal.

„Ég mun ekki kenna leikmönnunum um, ég geri það aldrei. Ég ber ábyrgðina. Þetta er ekki spurning um hvort þeir séu nógu góðir, við bjuggum til færi. Við gerðum okkar besta, leikmennirnir gerðu sitt besta en okkur tókst ekki að skora."

„Á þessari stundu erum við ekki fallnir. Á morgun, við vitum það ekki. Þetta er ekki lengur eingöngu undir okkur komið."
Athugasemdir
banner
banner
banner