fim 17. maí 2018 12:00
Fótbolti.net
Passion league spáin - 4. deildin í sumar
Magnús Valur Böðvarsson er helsti sérfræðingur þjóðarinnar þegar kemur að 4. deildinni.
Magnús Valur Böðvarsson er helsti sérfræðingur þjóðarinnar þegar kemur að 4. deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Hamar hefur styrkt sig vel í vetur.
Hamar hefur styrkt sig vel í vetur.
Mynd: Getty Images
Samúel Arnar Kjartansson framherji Ýmis var markahæstur í 4. deildinni í fyrra með 44 mörk í 13 leikjum!
Samúel Arnar Kjartansson framherji Ýmis var markahæstur í 4. deildinni í fyrra með 44 mörk í 13 leikjum!
Mynd: Úr einkasafni
Stál-úlfur endar í 5. sæti í A-riðli samkvæmt spánni.
Stál-úlfur endar í 5. sæti í A-riðli samkvæmt spánni.
Mynd: Aðsend
Eivinas Zagurskas er einn af erlendu leikmönnunum sem Snæfell/UDN hefur fengið í sínar raðir í vetur.
Eivinas Zagurskas er einn af erlendu leikmönnunum sem Snæfell/UDN hefur fengið í sínar raðir í vetur.
Mynd: Víkingur Ó.
KB er spáð 7. sætinu í A-riðli.
KB er spáð 7. sætinu í A-riðli.
Mynd: Brandur
Kantmaðurinn reyndi Guðmundur Gísli Gunnarsson er í stóru hlutverki hjá Reyni Sandgerði.
Kantmaðurinn reyndi Guðmundur Gísli Gunnarsson er í stóru hlutverki hjá Reyni Sandgerði.
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Hvíta Riddaranum er spáð upp úr B-riðli.  Hér er liðið í leik gegn Kormáki/Hvöt í vor.
Hvíta Riddaranum er spáð upp úr B-riðli. Hér er liðið í leik gegn Kormáki/Hvöt í vor.
Mynd: Hanna Símonardóttir
Davíð Teitsson leikmaður Elliða.
Davíð Teitsson leikmaður Elliða.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Skallagrími er spáð 5. sæti í B-riðli.
Skallagrími er spáð 5. sæti í B-riðli.
Mynd: Skallagrímur
Gunnar Jarl Jónsson gæti spilað með SR í sumar.
Gunnar Jarl Jónsson gæti spilað með SR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðbjörn Alexander Sæmundsson miðjumaður hjá Álftanesi.  Álftnesingum er spáð góðu gengi í sumar.
Guðbjörn Alexander Sæmundsson miðjumaður hjá Álftanesi. Álftnesingum er spáð góðu gengi í sumar.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Árborg fer upp úr C-riðlinum ef spáin rætist.
Árborg fer upp úr C-riðlinum ef spáin rætist.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Matt Garner kom til KFS í vikunni.
Matt Garner kom til KFS í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Álafoss endar í 7. sæti í C-riðli samkvæmt spá.
Álafoss endar í 7. sæti í C-riðli samkvæmt spá.
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Zakaria Elías Anbari (í miðjunni) er sem fyrr þjálfari Afríku.
Zakaria Elías Anbari (í miðjunni) er sem fyrr þjálfari Afríku.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Markvörðurinn reyndi Ingvar Þór Kale gekk til liðs við Kórdrengi í vetur.
Markvörðurinn reyndi Ingvar Þór Kale gekk til liðs við Kórdrengi í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Létti er spáð 3. sæti í D-riðli.
Létti er spáð 3. sæti í D-riðli.
Mynd: Léttir
Leikmenn Kríu fagna marki í fyrra.
Leikmenn Kríu fagna marki í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Vatnaliljum er spáð 6. sæti í D-riðli.  Hér er mynd úr leik liðsins gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum.
Vatnaliljum er spáð 6. sæti í D-riðli. Hér er mynd úr leik liðsins gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Keppni í 4. deild karla hefst á laugardaginn en 31 lið tekur þátt í deildinni í ár. Vegna fjölgunar í 3. deildinni fara þrjú lið upp úr 4. deildinni í ár.

Magnús Valur Böðvarsson er með Passion league aðgang á Snapchat (passionleague) en þar fylgist hann vel með 4. deildinni. Hér að neðan má sá Passion league spána fyrir deildina í sumra.

A- Riðill
A-riðillinn er líklega sterkasti riðillinn. Liðið sem skoraði mesta í fyrra og vann Lengjubikarinn, Ýmismenn, Berserkir sem féllu úr 3.deild í fyrra, Hamar sem olli vonbrigðum í fyrra en hafa bætt við fullt af nýjum mönnum sem og Snæfell sem hafa fengið heilt lið af erlendum leikmönnum. Afar erfitt er að spá í riðilinn sökum hversu miklar breytingar eru á liðunum.

1.Hamar
Hamarsmenn ætluðu sér stóra hluti í fyrra en enduðu á því að komast ekki í úrslitakeppnina. Varnarleikur og markvarsla varð þeim að falli og ætla þeir að gera betur í ár. Dusan Ivkovic er tekinn við liðinu og þrátt fyrir að hafa misst sterka leikmenn hafa þeir bætt við sig stórum mannskap af ungum leikmönnum ásamt nokkrum leikmönnum frá Austur Evrópu. Hamarsmenn ætla ekki að brenna sig á því í ár að koma ekki til leiks með nægilega sterkt lið enda stefnan sett beint upp. Allt annað en sæti í 3. deild yrðu að teljast vonbrigði hjá Hamarsmönnum.
Lykilmenn: Sam Malsom, Dimitrije Populic og Hafþór Vilberg Björnsson.

2. Ýmir
Ýmismenn eru með eitt leikreyndasta lið landsins með meðalaldur í kringum 30 árin. Leikmenn liðsins eiga flestir hverjir fjölda leikja í efstu og næstefstu deild. Þeir skoruðu yfirburða flest mörk á seinasta ári og eru gríðarlega sterkir sóknarlega. Þeir fengu þó að kenna á því á seinasta tímabili að fá of fáa alvöru leiki enda voru þeir í slakasta riðlinum og þrátt fyrir endalaust af mörkum skoruðum þá var það varnarleikurinn sem varð þeim að falli í úrslitakeppninni. Einn slakur leikur og tímabilið ónýtt. Þeir ætla ekki að brenna sig aftur á því, halda áfram að skora mörg mörk og ætla halda vörninni í betra lagi í ár.
Lykilmenn: Brynjar Orri Briem, Samúel Arnar Kjartansson og Ingi Þór Þorsteinsson.

3. Berserkir
Berserkir féllu úr 3.deildinni í fyrra og áttu nokkuð litla möguleika í þeirri deild, náðu einungis í fimm stig í heildina og auk þess gekk þeim illa í Lengjubikarnum en það var þó í B deildinni gegnum sterkum liðum. Berserkir hafa alltaf verið öflugir í neðstu deild og ætti ekki að vera breyting á því í ár. Það eru ekki miklar breytingar á liðinu milli ára nema það að missa risastóran bita í Jóni Ívari Rivine sem varði mark liðsins í fyrra. Það skarð er stórt og spurning hvort Berserkirnir nái að halda neðstu deildar áhlaupi sínu áfram og vera í harðri toppbaráttu.
Lykilmenn: Gunnar Jökull Johns, Kormákur Marðarson og Einar Guðnason.

4.KFR
KFR var í miðjumoði á seinasta ári og svo virðist sem þeirra hlutskipti gæti orðið það sama í ár. KFR liðið er aftur komnir í sömu gildin og áður að byggja liðið uppá heimastrákum sem eru sprækir í fótbolta með heimamanninn reynda Viktor Steingrímsson sem þjálfara. Það er alltaf erfitt að mæta KFR en þeir eru afar baráttuglaðir og tapa sjaldan stórt. Riðillinn virðist hinsvegar geta orðið mjög jafn og því hvert stig sem skiptir miklu máli ætli þeir sér að gera betur en spáin segir til um.
Lykilmenn: Andri Freyr Björnsson, Hjörvar Sigurðsson og Ævar Már Viktorsson.

5.Stál-úlfur
Stál-úlfarnir voru í fyrra í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni lengi framan af og lögðu meðal annars sterkt lið Álftaness í deildarkeppninni en töpuð stig gegn slakari liðum komu þeim um koll. Í ár hafa þeir bætt við sig mikinn mannskap og gætu orðið talsvert sterkari en spáin segir til um. Þó þarf að hafa í huga að þessi riðill er líklega sá sterkasti í deildinni og margt sem gæti gerst. Í besta falli gengur allt upp og Stál-úlfur fer í úrslitakeppnina, í versta falli verða þeir meðal neðri liðanna. Gamla kempan Scott Ramsay fékk félagaskipti á gluggadeginum og spennandi verður að sjá hann með liðinu.
Lykilmenn: Domantas Drungilas, Rui Pedro Pereira og Scott Ramsay.

6.Snæfell/UDN
Snæfellingar hafa undanfarin ár verið hálfgert aðhlátursefni í deildinni og tapað mörgum leikjum mjög stórt. Þeir hafa blásið í herlúðra og dælt inn erlendum leikmönnum sem ennþá eiga eftir að sýna getu sína. Leikmannahópurinn var þunnur í Lengjubikarnum og margir leikmenn meiddir og verður því áhugavert að sjá hvað gerist haldist allir leikmenn þeirra heilir. Gerist það gætu þeir hæglega gert betri hluti en hér segir. Til að mynda sigruðu þeir fjóra af fimm leikjum sínum í Lengjubikarnum og verður því gaman að fylgjast með hvort Snæfellingar geti ekki átt frábært tímabil sem þeir geta verið stoltir af.
Lykilmenn: Eivinas Zagurskas, Marius Ganusauskas, Paulius Osauskas og Mykolas Krasnovskis,

7. KB
KB liðið hefur mátt muna fífil sinni fegurri en árangur þeirra seinustu ár hafa ekki verið eins og hér áður þegar þeir voru eitt af sterkustu liðum deildarinnar. Þeir mæta þó alltaf með samkeppnishæft lið og með marga flotta fótboltamenn. Riðillinn í ár virðist einfaldlega vera alltof sterkur og einhverra hluta vegna virðist allt loft fara úr Breiðhyltingum ef illa gengur framan af. Það væri gaman að sjá KB menn afsanna þessa spá og sýna sitt retta andlit heilt tímabil.
Lykilmenn: Friðjón Magnússon, Chalee Mothua og Kristján Hermann Þorkelsson.

8. Björninn
Björninn úr Grafarvogi eru mættur aftur til leiks eftir nokkurra ára fjarveru. Komu þeir inn með stuttum fyrirvara eftir að Stokkseyri ákvað að taka ekki þátt í ár. Þeir ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og lenda í sterkum riðli. Fyrsta árið er oftar en ekki mjög erfitt og á eftir að reyna á hópinn. Þeir hafa þó verið að vinna slakari 4.deildarlið í æfingaleikjum og gætu orðið skeinuhættir.
Lykilmenn: Þorsteinn Vilhjalmsson, Goran Jovanovski og Agnar Bragi Magnússon.

B-riðill
B-riðillinn gæti orðið áhugaverður. Fyrirfram mætti búast við að Reynir Sandgerði og Hvíti Riddarinn væru sterkustu liðin í riðlinum en þá eru nokkur lið sem hafa bætt sig mikið á seinustu árum. Mídasarliðið er eitt þeirra og ollu sterkum liðum vandræðum í fyrra og þá koma Elliðamenn með sterkara lið til leiks í ár heldur en í fyrra. Skallagrímur hefur ollið vonbrigðum á undanförum árum en gætu alltaf verið líklegir að blanda sér í baráttuna. Þá er komin meiri reynsla í lið SR á meðan tímabilið gæti orðið erfitt fyrir Ísfirðinga og ungu Framarana í Úlfunum.

1. Reynir Sandgerði
Reynismenn féllu úr 3.deildinni í fyrra og má nánast segja að það hafi verið slys. Mikill metnaður hefur verið lagður í Reynisliðið á undanförnum árum og er aðeins eitt markmið í ár, beint upp. Fótboltahefðin er rík í Sandgerði og þar sætta menn sig ekki við að vera í neðstu deild. Varnarmaðurinn reyndi Haraldur Freyr Guðmundsson er tekinn við liðinu og eftir fínt gengi í bikarnum má reikna með að Reynismenn taki þennan riðil. Góður liðsstyrkur hefur komið innanlands sem og að utan og Sandgerðingar eru til alls líklegir í sumar.
Lykilmenn: Max Grammel, Guðmundur Gísli Gunnarsson og Magnús Þórir Matthíasson.

2. Hvíti Riddarinn
Hviti hefur verið með eitt allra sterkasta liðið í 4.deildinni lengi og oft komist í úrslitakeppnina. Þeir lentu í smá basli í Lengjubikarnum og voru ekki sannfærandi en eru með sterkt lið. Mikilvægt er að lykilleikmenn haldist heilir og spili sem flesta leiki en þeir spila nánast alltaf alvöru kraftabolta og skora mikið af mörkum. Þeir þurfa að passa sig vel á þessum riðli enda eru þar lið sem ber að varast og má alls ekki vanmeta.
Lykilmenn: Magnús Már Einarsson, Einar Marteinsson og Haukur Eyþórsson.

3. Mídas
Mídasarliðið kom skemmtilega á óvart í fyrra og endaði í þriðja sæti í sínum riðli eftir harða baráttu um annað sætið við KH. Þeir eru með lið sem spilar fast og þá sérstaklega á sterka andstæðinga. Liðið hefur bætt sig gríðarlega á milli ára og fór alla leið í undanúrslit í Lengjubikarnum. Í kjölfarið tapaði liðið hins vegar gegn Elliða í Mjólkurbikarnum. Mídas hefur byggt vel upp undanfarin ár og liðið er til alls líklegt í sumar.
Lykilmenn: Steinar Haraldsson, Daníel Björn Sigurbjörnsson og Þór Steinar Ólafs.

4. Elliði
Elliðamenn voru með áhugavert lið í fyrra. Eina stundina eitt lélegasta lið deildarinnar og aðra stundina lið sem vann sterkasta lið 4.deildarinnar í fyrra, Augnablik. Það fór mjög eftir hverjir spiluðu hverju sinni en reikna má með meiri stöðuleika í ár. Margir ungir Fylkisstrákar gengu uppúr 2.flokk og ættu því að geta einbeitt sér meira af Elliða í ár frekar en 2.flokknum. Þeir eru alveg með lið sem gæti komist í úrslitakeppnina ef þeir verða ávallt með sitt sterkasta lið. Bið aðdáendur deildarinnar að fylgjast vel með Natan Hjaltalín sem er ungur markaskorari sem getur raðað inn mörkum í þessari deild.
Lykilmenn: Natan Hjaltalín, Daníel Freyr Guðmundsson og Friðrik Ingi Þráinsson.

5. Skallagrímur
Það verður að teljast óvenjulegt að spá Skallagrími þetta neðarlega og ólíklegt að þeir endi svona neðarlega sér í lagi þar sem þeir voru að fá erlenda leikmenn sem gætu styrkt liðið verulega ásamt markverði frá nágrönnum sínum frá Ólafsvík. Hins vegar er spurning hversu sterkir þeir leikmenn eru og tíminn sem tekur að stilla saman strengina. Það eitt að tapa 9-0 gegn liði í sömu deild í bikarnum gerir það að verkum að Skallagrími er spáð þetta neðarlega. Yngvi Borgþórsson er hinsvegar reynslumikill og klár þjálfari sem hlær líklega að spá sem þessari.
Lykilmenn: Viktor Ingi Jakobsson, Juan Carlos Vazguez og Alvaro Valencia Martinez.

6. SR
SR ingar hafa bætt sig ár frá ári og gætu komið vel á óvart í ár. Þá hafa þeir fengið félagaskipti tveggja stórskemmtilegra leikmanna í Nik Chamberlain og dómaranum Gunnari Jarli Jónssyni en óvíst er hversu mikið þeir verða með. Framfarirnar á liðinu eru hinsvegar það sem skiptir máli og eru líklegir til að stríða sterkari liðinum og hver veit nema SR verði spútnikliðið í ár. Allavega eru þeir í geggjuðum búningum.
Lykilmenn: Dagur Harðarson, Andri Jónsson og Nik Anthony Chamberlain

7. Hörður Ísafirði
Harðarliðið er eitt af þeim liðum sem er spáð verra gengi en í fyrra. Það má segja að þeir séu með tvö lið. Eitt fyrir Vestan og eitt fyrir sunnan. Sunnanliðið er klárlega talsvert lakara en mikilvægt verður fyrir liðið að pikka í stigin á heimavelli enda gríðarlega erfitt að fara vestur og sækja punkta. Þeim gekk afar illa í Lengjubikarnum og risatap í bikarnum var ekkert til að hjálpa við bjartsýnina. Á gluggadeginum komu leikmenn á láni frá Vestra en þar á meðal er framherjinn Hjalti Hermann Gíslason sem gæti hjálpað til við markaskorun en það hefur verið ákveðið vandamál hjá Herði á köflum.
Lykilmenn: Jóhann Baldur Bragason, Hjalti Hermann Gíslason og Birkir Eydal.

8. Úlfarnir
Sumarið gæti orðið erfitt fyrir Úlfana, þeir voru slakir í Lengjubikarnum og eru í erfiðum riðli þar að auki. Breiddin hefur ekki verið mikil og skiptir máli fyrir liðið að hafa sitt sterkasta lið hverju sinni. Ólíkt öðrum riðlum þá þarf ekkert að vera að Úlfarnir séu slakasta liðið í riðlinum sínum og eru talsvert sterkari en slökustu lið hinna riðlanna. Þá hafa þeir fengið nokkra gamla hunda sem gætu reynst mikilvægir haldist þeir heilir.
Lykilmenn: Arnór Ingi Finnbjörnsson, Vigfús Geir Júlíusson og Matthías Björnsson

C-riðill
Hér er á ferðinni afar áhugaverður riðill svo ekki annað sé sagt. Það verður að segjast ótrúlegt að KSÍ hafi raðað fjórum af slökustu liðum deildarinnar í sama riðil og gætu því margar afar ljótar tölur litið dagsins ljós. Þá virðist það einnig gerast að sterku liðin sem komast í úrslitakeppni úr slökum riðlum hlaupi á vegg þegar í úrslitakeppni er komið. Líklegt er að þetta verði tveggja hesta kapphlaup um efsta sætið milli Álftaness og Árborgar en GG og KFS gætu blandað sér í baráttuna. Hvað gerist í neðri helmingnum er ekki gott að segja.

1. Álftanes
Álftanes var hársbreidd frá því að komast upp um deild í fyrra en hefur tekið nokkrum breytingum í ár, misst nokkra og fengið aðra í staðinn. Kjarninn er samt sem áður sá sami og framherjinn reyndi Marel Baldvinsson er tekinn við. Álftanes náði góðum úrslitum í undirbúningsmótum unnu til að mynda Kára og Aftureldingu sem eru bæði í 2.deild og spáð góðu gengi þar.Ekki skemmir fyrir að liðið fékk besta markvörð 2.deildar í fyrra og ef allt er eðlilegt ætti Álftanes að vinna þennan riðil og verður afar forvitnilegt að sjá markatölu liðsins eftir þennan riðil.
Lykilmenn: Hörður Fannar Björgvinsson, Stefán Ingi Gunnarsson og Freymar Örn Ómarsson.

2. Árborg
Árborgarliðið er lið sem fer oftast nær í úrslitakeppnina, þeir fóru í úrslit í C-deild Lengjubikarnum og eru með lið sem alltaf er erfitt að spila á móti. Þeir eru eitt þessara liða sem fáar breytingar eru á og eru með frábæra umgjörð í kringum leiki sína og oft mæta margir á leiki hjá þeim. Það ætti að koma fáum á óvart ef Árborg fer í úrslitakeppni í ár en riðillinn í ár er frekar slakur.
Lykilmenn: Eyþór Helgi Birgisson, Magnús Helgi Sigurðsson og Haukur Ingi Gunnarsson.

3. KFS
KFS liðið er lang líklegasta liðið til að veita Álftanes og Árborg samkeppni. Það er alltaf erfitt að koma og spila í Eyjum og þá eru meirihluti leikmanna í 2.flokk ÍBV núna skráður í KFS og gæti það styrkt liðið mikið. Veikleiki KFS er og hefur alltaf verið útivöllurinn og það verður að lagast ætli liðið sér að komast í úrslitakeppni. Hinsvegar þar sem riðillinn er frekar slakur þá ættu útivallastigin að detta í hús og innbyrðisviðureignirnar við sterkari liðin gríðarlega mikilvæg.
Lykilmenn: Ian Jeffs, Egill Jóhannsson og Matt Garner.

4. GG
GG liðið kom inn í deildina í fyrra með meðallið. Stóð vel í sterkari liðinum en það skilaði sér ekki í mörgum stigum. Þeir ættu að vinna slakari liðin en þurfa að ná góðum úrslitum gegn þeim þremur fyrrnefndu ef þeir ætla sér ofar í ár. Hafa ekki bætt við sig mörgum leikmönnum en hafa þó fengið reynsluna í Orra Frey Hjaltalín sem gæti reynst gríðarlega mikilvægt.
Lykilmenn: Orri Freyr Hjaltalín, Davíð Arthur Friðriksson og Viktor Guðberg Hauksson.

5. Ísbjörninn
Á þeim sjö tímabilum sem Ísbjörninn hefur tekið þátt hefur liðið aldrei náð í fleiri en 7 stig og alltaf endað í neðsta eða næst neðsta sæti riðils sins. Árið í ár gæti orðið breyting á og er það helst vegna niðurröðunar á riðlum. Það mundi held ég enginn missa hökuna í gólfið ef Ísbjörninn mundi sækja hátt í 20 stig í sumar en liðið gæti allt eins endað með 0 stig þó það sé afar ólíklegt í þessum riðli. Til að mynda töpuðu þeir 9-0 í bikarnum fyrir Álftanesi sem er í sama riðli og segir það kannski til um styrkleikamun á sterku og veikari liðunum í riðlinum.
Lykilmenn: Guðmundur Kristinn Vilbergsson, Martin Sindri Rosenthal og Arnar Pálsson.

6. Álafoss
Álafoss komu nýjir inn í deildina í fyrra og áttu ekki góðu gengi að fagna. Þeir voru þó talsvert sterkari í síðari umferðinni eftir að hafa fengið nýja leikmenn inn og ennþá fleiri hafa bæst við í vor og því forvitnilegt að fylgjast með þeim í ár. Þeir eru heppnir með riðil og gætu alveg endað í 4-5.sæti ef allt gengur upp en hinsvegar gætu þeir alveg endað í botnsætinu ef allur vindur og áhugi fer úr sterkari leikmönnum þeirra.
Lykilmenn: Aron Elfar Jónsson, Grétar Óskarsson og Hörður Steinar Harðarson.

7. Kóngarnir
Kóngarnir töpuðu mörgum leikjum afar illa á seinasta ári og byrjuðu tímabilið á risa tapi gegn Vestra en það er kannski engin skömm í því. Þeir hafa fengið til sín nokkra mjög fína stráka á undanförnum dögum sem ættu að styrkja liðið verulega og sérstaklega í innbyrðisviðureignunum á móti slakari liðunum og vonandi leka færri mörkum inn.
Lykilmenn: Ingimar Daði Ómarsson, Pétur Geir Ómarsson og Ronnarong Wongmahadthai.

8. Afríka
Enn eitt árið nær Zakaría Anbari þjálfari Afríku að halda úti liði og aftur spáum við þeim neðsta sæti. Hakan færi þó ekkert í gólfið ef þeir kæmu á óvart og næðu 10 stigum eða meira þar sem mikið er um slök lið í riðlinum. Vonandi gengur allt í haginn hjá Afríku í ár. Þeir finna gleðina sem fylgir því að spila knattspyrnu og ná sér í nokkra góða sigra.
Lykilmenn: Grzegorz Jan Kicinski, Marcin Dawid Czernik, Martin Luke Forward.

D-riðill
Fyrirfram mundi maður líta strax á tvö lið í úrslitakeppnina, Kórdrengi og ÍH, en það verður að hafa í huga að Kormákur/Hvöt, Léttir og Kría voru öll lengi vel í baráttunni um sæti í úrslitakeppni í fyrra. Vatnaliljur voru lið sem stóðu vel í flestum liðum og stálu stigum og flestir búast við að Geisli vermi botnsætið.

1. Kórdrengir
Kórdrengirnir komu eins og stormsveipur inn í 4.deildina í fyrra og komu öllum á óvart. Þeir sönnuðu sitt mál að þeim er alvara. Kórdrengir fóru í undanúrslit í fyrra en þeir eru með hverja stórstjörnuna á fætur annarri og ætla upp í ár. Það er klárlega ekkert lið í þessari deild sem hefur fleiri úrvalsdeildarleiki en leikmenn hjá Kórdrengjum. Einn þeirra, Farid Zato, á meira segja landsleiki með ekki ómerkari manni en Emanuel Adebayor. Það er stórt. Ef allt er eðlilegt valta Kórdrengir yfir þennan riðil en þeirra veikleiki hefur helst verið að nenna ekki hlutunum gegn slakari liðunum og falla á sama plan. Þá eru þeir ekki ósigrandi eins og Ýmismenn sönnuðu með sigri í Lengjubikarnum. Þeir ættu samt að vinna þennan riðil.
Lykilmenn: Farid Zato, Ingvar Þór Kale og Viktor Unnar Illugason.

2. ÍH
ÍH tapaði einmitt fyrir Kórdrengjum í svakalegu þriller einvígi í 8-liða úrslitum úrslitakeppninni í fyrra en þeir leikir voru jafnir og skemmtilegir. Kórdrengir hafa stigið á bensíngjöfina í leikmannamálum síðan þá á meðan ÍH hefur fengið unga stráka til sín. Einhverjir leikmenn hafa dottið út síðan í fyrra en þar á meðal er Andri Magnússon sem skoraði tæplega mark að meðaltali í leik í fyrra en hann fór í KV á dögunum. Erfitt verður að fylla skarð hans en ÍH ættu þó að ná sæti í úrslitakeppni ef liðið spilar af eðlilegri getu.
Lykilmenn: Magnús Stefánsson, Marteinn Gauti Andrason og Stefnir Stefánsson.

3. Léttir
Léttismenn eru alltaf með solid lið, komast stundum í úrslitakeppnina en vantar alltaf herslumuninn til þess að geta fylgt eftir sterkari liðunum. Í ár þurfa þeir aftur að bíta í það súra epli að komast ekki í úrslit ef spáin gengur eftir. Þeir vilja væntanlega ólmir afsanna þá spá og enda ofar. Mjög góður liðsstyrkur barst á gluggadeginum en þá komu níu nýir leikmenn til félagsins. Þar á meðal komu leikmenn sem hafa góða reynslu af því að spila með ÍR í efri deildum.
Lykilmenn: Hafliði Hafliðason, Reynir Haraldsson og Trausti Björn Ríkharðsson.

4. Kría
Kríumenn hafa verið aðeins undir radarnum á þessu ári eftir fínt tímabil á seinasta ári. Seinasta tímabil byrjaði frábærlega en fór að ganga aðeins á afturfótunum síðari hluta tímabils. Þeir hafa ekki bætt miklu við sig frá því í fyrra og misst sterkan sóknarmann í Viðari Þór Sigurðssyni sem fór í KV. Þá tóku þeir ekki þátt í Lengjubikarnum og koma því eins og óskrifað blað inn í mótið í sumar. Gott tímabil í fyrra skilar þeim samt 4.sætinu í spánni.
Lykilmenn: Axel Fannar Sveinsson, Björn Valdimarsson og Pétur Theodór Árnason.

5. Kormákur/Hvöt
Kormáki/Hvöt gekk afleitlega í Lengjubikarnum og bikarnum einnig. Stórtöp litu dagsins ljós og ekki margt bjart framundan. Grasið virðist vera farið að grænka fyrir norðan og reynsluboltar fengið fiðring í tærnar og skipt yfir í Kormák. Blásið hefur verið í herlúðra og spænskir leikmenn eru mættir í baráttuna fyrir sumarið. Spurning hversu sterkir þeir verða. Í fyrra var Kormákur/Hvöt í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en spurning hvað þeir gera í ár.
Lykilmenn: Juan Carlos Dominguez Raqena, Sigurður Bjarni Aadnegaard og Frosti Bjarnason.

6. Vatnaliljur
Vatnaliljurnar voru erfiðir viðureignar í fyrra og sóttu til að mynda óvænt þrjú stig til Eyja gegn KFS svo fátt eitt sé nefnt. Lið sem erfitt getur verið að mæta en hefur aftur á móti ekkert nógu marga afgerandi menn. Þeir vilja klárlega afsanna þessa spá en miðað við gengið í Lengjubikarnum og 9-0 tap gegn Gróttu í bikarnum er ekki hægt að spá þeim ofar að þessu sinni. Nokkrir leikmenn komu til Vatnaliljanna á gluggadegi í vikunni og þeir breikka hópinn og gera hann öflugri.
Lykilmenn: Aaron Palomares, Victor Páll Sigurðsson og Sæþór Atli Harðarson.

7. Geisli Aðaldal
Geislamenn komu gríðarlega á óvart í fyrra og náðu í heil 11 stig. Þá náðu þeir að standa lengur í stóru liðunum heldur en margir hefðu kannski búist við. Það hafa hinsvegar verið miklar mannabreytingar hjá Geisla og gætu þeir komið á óvart í sumar. Það er vitað fyrir víst að markmið þeirra er að gera betur í ár heldur en í fyrra og það mundi þýða að neðsta sætið væri aldrei þeirra. Geislamenn eru skipulagðir og búnir að bæta við mönnum og verður gaman að fylgjast með þeim, þá verður einnig forvitnilegt að sjá hvort andstæðingarnir vanmeti þá og mæti með slök lið norður í Aðaldal. Það gæti reynst dýrkeypt.
Lykilmenn: Hreggviður Heiðberg Gunnarsson, Brynjar Logi Magnússon og Hermann Gunnarsson.
Athugasemdir
banner
banner