Breytingar hafa verið gerðar á leiktímum í 4. umferð Pepsi-deildar karla vegna slæmrar veðurspár í kvöld, spáð er miklu roki og rigningu.
Samkvæmt upprunalegu plani áttu fjórir leikir umferðarinnar að vera í kvöld en tveir á morgun.
Búið er að fresta KR - Breiðablik og Keflavík - Fjölnir en leikirnir hafa verið settir á morgundaginn. Félögin náðu saman um að þessir leikir yrðu færðir aftur um sólarhring.
Eins og staðan er núna mun leikur FH og KA fara fram í Krikanum klukkan 18. FH-ingar vildu frestun en KA samþykkti ekki þá beiðni vegna mikils kostnaðar við að fresta leiknum.

Leikur Fylkis og ÍBV verður á tilsettum tíma klukkan 18 í kvöld enda fer hann fram inni í Egilshöll.
4. umferð Pepsi-deildar karla:
Í kvöld fimmtudag:
18:00 FH - KA
18:00 Fylkir - ÍBV
Á morgun föstudag:
19:15 Keflavík - Fjölnir
19:15 KR - Breiðablik
19:15 Valur - Stjarnan
19:15 Víkingur - Grindavík
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) May 17, 2018
Samkvæmt ósk KR-inga hefur leik KR og Breiðabliks í PEPSI verið frestað til morguns. Sami tími og sami leikstaður, bara annar dagur - föstudagsleikur! pic.twitter.com/doSeAmDPZj
— Blikar.is (@blikar_is) May 17, 2018
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir