Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. maí 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Sindri fær fjóra bandaríska leikmenn (Staðfest)
Katelyn Nebesnick.
Katelyn Nebesnick.
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Sindri hefur fengið fjóra leikmenn frá Bandaríkjunum fyrir átökin í Inkasso-deild kvenna í sumar.

Um er að ræða Crystal Lewin, 25 ára gamlan sóknarmann, Katelyn Nebesnick, 25 ára miðjumann, sem og þær Monique Goncalves, 24 ára varnarmann, og Nicole C. Maher, 25 ára markmann.

Nicole spilaði reyndar í sóknarlínunni í fyrtu umferðinni um síðustu helgi og skoraði jöfnunarmark Sindrastúlkna gegn Hömrunum í 2-2 jafntefli.

Einnig er Ylfa Beatrix N. Stephensdóttir komin aftur á heimahaga frá Stjörnunni.

Næsti leikur Sindra í Inkasso-deildinni er heimaleikur gegn Haukum á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner