fim 17. maí 2018 19:00
Magnús Már Einarsson
Fabregas: Á Mourinho mikið að þakka
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas, miðjumaður Chelsea, segist eiga Jose Mourinho mikið að þakka fyrir að gefa sér annað tækifæri í enska boltanum. Mourinho fékk Fabregas til Chelsea frá Barcelona árið 2014.

Fabregas mætir Mourinho og lærisveinum hans í úrslitum enska bikarsins um helgina.

„Ég elska hann. Ég segi það alltaf. Ég á honum mikið að þakka því hann fékk mig hingað. Ég mun alltaf muna eftir því," sagði Fabregas.

„Á fyrsta ári mínu hér þá meðhöndlaði Arsene (Wenger) mig alltaf eins og son. Sá sem kemst næst honum er Jose."

„Hann meðhöndlaði mig vel, lét mér líða vel og vera leiðtoga í liðinu frá degi eitt. Það var stórkostlegt og þetta er eitthvað sem hefur fylgt mér í fjögur ár mín hjá Chelsea. Þessi reynsla er honum að þakka."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner