Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 17. maí 2018 17:07
Egill Sigfússon
Byrjunarlið FH og KA: Eddi Gomes og Castillion á bekknum
Castillion á bekknum
Eddi Gomes er mættur í leikmannahóp FH
Eddi Gomes er mættur í leikmannahóp FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH tekur á móti KA hér í blíðskaparveðrinu í Kaplakrika í kvöld í 4. umferð Pepsí-deildar karla. FH bað um að fá að fresta leiknum en KA vildi spila leikinn þar sem þeir voru þegar mættir suður.

FH gerir tvær breytingar frá sigurleiknum gegn Fjölni í Egilshöllinni. Atli Guðnason kemur inn í byrjunarliðið á kostnað Geoffery Castillion og hinn efnilegi Jónatan Ingi Jónsson byrjar inná í stað Kristins Steindórssonar. Athygli vekur að Gíneu maðurinn Eddie Gomes er á bekknum hjá FH í dag í sínum fyrsta leik, verður fróðlegt að sjá hvort hann komi við sögu.

KA teflir fram óbreyttu liði frá sigurleiknum gegn ÍBV á Akureyrarvelli. Bjarni Mark er áfram á miðjunni og Callum Williams í vinstri bakverði en Bjarni hafði verið í vinstri bakverði og Callum í miðverði í fyrstu tveim leikjunum.

Byrjunarlið FH
1. Gunnar Nielsen (m)
4. Pétur Viðarsson
6. Robbie Crawford
7. Steven Lennon
9. Viðar Ari Jónsson
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
11. Atli Guðnason
16. Guðmundur Kristjánsson
21. Egill Darri Makan Þorvaldsson
27. Brandur Olsen
30. Jónatan Ingi Jónsson

Byrjunarlið KA
30. Cristian Martínez (m)
2. Bjarni Mark Antonsson
3. Callum Williams
5. Guðmann Þórisson (f)
6. Hallgrímur Jónasson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
24. Daníel Hafsteinsson
55. Aleksandar Trninic



Beinar textalýsingar:
18:00 FH - KA
18:00 Fylkir - ÍBV
Athugasemdir
banner
banner
banner