fös 18. maí 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hafa trú á því að Benítez muni ekki hoppa frá borði
Benítez á hliðarlínunni. Hann hefur unnið magnað starf.
Benítez á hliðarlínunni. Hann hefur unnið magnað starf.
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur trú á því að Rafa Benítez verði áfram í vinnu sem stjóri liðsins þrátt fyrir áhuga á honum hjá öðrum félögum. Frá þessu greinir fréttastofa Sky Sports.

Newcastle telur að samningurinn sem félagið á við Benítez muni fæla önnur félög burt. Í samningnum er ákvæði um að greiða þurfi háa upphæð ef Benítez verður ráðinn á öðrum stað en Newcastle.

Benítez á eitt ár eftir af samningi sínum við Newcastle.

Spánverjinn hefur verið orðaður við West Ham undanfarna daga eftir að Lundúnafélagið ákvað ekki að endurnýja samning sinn við David Moyes, en Newcastle hefur trú á því að hann sé ekki á leið þangað.

Benítez, sem hefur unnið magnað starf með Newcastle, var nálægt því að taka við West Ham 2015 en endaði á að fara til Real Madrid.

Newcastle endaði í 10. sæti á þessu tímabili á meðan West Ham kláraði í 13. sæti með tveimur stigum minna.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner