Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   fim 17. maí 2018 20:23
Egill Sigfússon
Túfa: Reikna með Steinþóri og Milan í næstu viku
Túfa var ekki ánægður með leik sinna manna í dag
Túfa var ekki ánægður með leik sinna manna í dag
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
KA heimsótti FH í 4.umferð Pepsí-deildar karla og þurfti að lúta í lægra haldi fyrir sterku FH liði, 3-1 tap staðreynd. Túfa þjálfari KA manna sagði að fyrri hálfleikurinn hefði spilast vel en svo fór leikurinn niður á við í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: FH 3 -  1 KA

„Við spiluðum fyrri hálfleik mjög vel, eins og við lögðum upp með og með örlítið meiri gæði hefðum við verið yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik fáum við á okkur tvö klaufaleg mörk og erum að elta leikinn."

Mikill óstöðugleiki hefur verið í leik KA manna á tímabilinu og Túfa sagði að það væri áhyggjuefni en benti þó á að liðið átti góðar 90 mínútur gegn ÍBV.

„Síðustu helgi vorum við að binda saman 90 mínútur mjög vel eins og við gerðum í allan vetur. Núna erum við ekki að ná því og það er eitthvað sem við þurfum að laga."

Milan Joksimovic og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa ekkert spilað með KA í vetur en þeir ættu að vera klárir í næstu viku.

„Þeir eru meiddir, ég er orðinn frekar þreyttur á þessum spurningum, spyrjið mig frekar um Danna Hafsteins eða Frosta Brynjólfs sem eru að spila sína fyrstu leiki í meistaraflokki. Ég reikna samt með að þeir verði klárir í næstu viku."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner