fim 17. maí 2018 21:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: ESPN 
Griezmann: Ég er einn þeirra þriggja bestu í heiminum
Mynd: Getty Images
Frakkinn Antoine Griezmann vill meina að hann sé á meðal þriggja bestu fótboltamanna í heimi.

Griezmann sagði þetta eftir að hafa unnið Evrópudeildina með Atletico Madrid í gær.

„Ég hef lært mikið af Cholo (Diego Simeone). Ég er betri leikmaður þökk sé honum. Ég er einn af þremur bestu fótboltamönnum í heimi þökk sé honum," sagði Griezmann eftir að hafa lyft bikarnum.

Griezmann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona. Hann vildi ekki ræða framtíð sína í sigurvímunni í gærkvöldi.

„Þetta er ekki rétta augnablikið til að tala um framtíð mína, ég verð að njóta þess að hafa unnið titil og fagna því með stuðningsmönnum. Þetta er draumur fyrir mig, að vinna titil með Atletico, með Diego Simeone og vinum mínum og liðsfélögum."

Griezmann var maður leiksins í úrslitaleiknum gegn Marseille. Hann skoraði tvö mörk í leiknum sem Atletico vann 3-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner