Félagarnir Arjen Robben og Franck Ribery verða áfram í herbúðum Bayern München. Það hefur verið staðfest.
Bayern staðfesti það í síðustu viku að hinn 35 ára gamli Ribery hefði skrifað undir þess efnis að framlengja samning sinn um eitt ár. „Við erum mjög ánægðir að Franck verði áfram hjá okkur," sagði Hasan Salihamidzic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern, í yfirlýsingu sem var gefin út um málið.

Það var svo staðfest í kvöld að Robben væri ekki á förum neitt. Hann fylgdi í fótspor Ribery og skrifaði undir samning út næsta tímabil.
Robben er 34 ára og Ribery er 35. Þeir eru í miklum metum hjá stórveldinu frá Bæjarlandi. Ribery hefur verið hjá félaginu frá 2007 á meðan Robben kom árið 2009.
Leikmennirnir eru í minna hlutverki en áður en eru samt mikilvægir innan leikmannahópsins.
Wir freuen uns! 😊@FranckRibery bleibt bis 2019 beim #FCBayern! 🙌
— FC Bayern München (@FCBayern) May 7, 2018
Zur Presseerklärung: https://t.co/EwBlQDBw41#OhhhhFranckRibéry #MiaSanMia pic.twitter.com/7nXSK2YsMt
✍ Arjen's put pen to paper and extended his #FCBayern contract until 2019! 👏 #MiaSanMia pic.twitter.com/MN103rayJS
— FC Bayern English (@FCBayernEN) May 17, 2018
Athugasemdir