Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. maí 2018 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stóri Sam ósáttur: Fleiri sem voru ánægðir með mig
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce var vikið úr stöðu sinni sem knattspyrnustjóri Everton í gær, hann var látinn taka pokann sinn.

Sam tók við Everton af Ronald Koeman í nóvember síðastliðnum en þá var liðið í fallbaráttu. Everton klifraði upp töfluna undir stjórn Samma og endaði í 8. sæti.

Í samtali við Talksport segist hann hafa búist við því að fá sparkið þegar hann gekk inn á fund með eigandanum, Fahrad Moshiri.

„Þetta virtist vera klappað og klárt í fjölmiðlum. Það voru margir sem vissu af þessu fyrir nokkrum dögum," sagði Allardyce sem var auðvitað vonsvikinn.

„Ég var búinn að undirbúa mig fyrir þetta."

Allardyce var harðlega gagnrýndur af stuðningsmönnum Everton fyrir fótboltann sem hann lét liðið spila. Íslenskir stuðningsmenn Everton sem Fótbolti.net hafði samband fögnuðu brottrekstri hans. En Sammi er á því máli að fleiri stuðningsmenn hafi stutt við bakið á honum en þeir sem gagnrýndu hann.

„Það voru klárlega fleiri stuðningsmenn Everton sem voru ánægðir með það sem ég var að gera en þeir sem voru það ekki. Þeir sem sýna gremju fara oftast ekki leynt með hana."

„Ég myndi segja að flestir stuðningsmenn Everton hafi ekki viljað mig í burtu," sagði Allardyce enn fremur.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner