ÍA 1 - 0 ÍR
1-0 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('48)
1-0 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('48)
Það var einn leikur í Inkasso-deild kvenna í kvöld. ÍA fékk ÍR í heimsókn upp á Akranesi.
ÍA er spáð í toppbaráttu í sumar á meðan ÍR er spáð um miðja deild.
Það var ekki mikið sem skildi liðin að í kvöld, aðeins eitt mark. Það kom í upphafi seinni hálfleiks og var skorað af Bergdísi Fanneyju Einarsdóttur.
Þetta er fyrsta mark Bergdísar í sumar. Hún skoraði sjö mörk í 1. deildinni í fyrra.
Lærimeyjar Helenu Ólafsdóttur fara vel af stað og eru með sex stig, fullt hús stiga eftir tvo leiki. Báðir leikir liðsins hingað til hafa endað 1-0. ÍR er án stiga eftir að hafa tapað fyrsta leiknum 5-0 gegn Keflavík.
Sigurmark @ia_akranes gegn ÍR. #fotboltinet pic.twitter.com/oaDlREPP8L
— ÍA TV (@ia_sjonvarp) May 17, 2018
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir