Þýska félagið Borussia Dortmund hefur ráðið Lucien Favre sem þjálfara.
Favre hætti hjá franska félaginu Nice á dögunum og hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning hjá Dortmund.
Favre hætti hjá franska félaginu Nice á dögunum og hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning hjá Dortmund.
Hinn sextugi Favre stýrði Nice í áttunda sæti í vetur en í fyrra endaði liðið í þriðja sæti undir hans stjórn.
Dortmund endaði í fjórða sæti í vetur og rétt náði sæti í Meistaradeildinni.
Peter Stoger, þjáflari Dortmund, tilkynnti eftir lokaumferðina að hann myndi hætta en hann hafði áður tekið við starfinu af Peter Bosz í desember.
Athugasemdir