Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 22. maí 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuttbuxnaklúður hjá Kolasinac og Ramsey með legghlífar
Sead Kolasinac og Aaron Ramsey.
Sead Kolasinac og Aaron Ramsey.
Mynd: Getty Images
Við greindum frá því fyrr í kvöld að Arsenal opinberaði nýjan aðalbúning sinn fyrir næstu leiktíð í dag.

Sjá einnig:
Svona verður aðalbúningur Arsenal á næstu leiktíð

Sean Kolasinac, bakvörður Arsenal, var einn af þeim sem fenginn var í myndatöku fyrir nýja búninginn. Kolasinac lenti hins vegar í smá veseni við að klæða sig í búninginn.

Hann sneri stuttbuxum sínum vitlaust en það virðist enginn á setti hafa tekið eftir því.

Netverjar voru þó fljótir að taka eftir því enda um frekar skondin mistök að ræða.

Kolasinac var ekki sá eini sem vakti athygli í myndatökunni því Aaron Ramsey gerði það einnig. Hann mætti með legghlífar.

„Ég veit að Aaron Ramsey hefur verið hræðilega óheppinn með meiðsli en ég er ekki viss um að legghlífarnar séu nauðsynlegar í myndatöku," skrifar blaðamaðurinn David Preece á Twitter.





Athugasemdir
banner
banner
banner